Mansöngur -Um herðingu jarla

Mér skilst að Ólafur sé búinn að vatíkana sig og ferðin hafi að öllu leyti farið eins og þegar hefur komið fram í rímunni hér fyrir neðan. Hann iðraðist allra synda sinna af heilum hug, lofaði að synja aldrei framar lögum staðfestingar og rækta garðinn sinn með Dorrit, enda fer hún mikinn í matreiðsluþáttum á Stöð 2. RÚV toppar það ekki með Yesmine Olsson. Það er önnur saga.
Mansöngurinn er bráðum fullbúinn og verður þá ríman sett saman eins og hvert annað húsgagn úr IKEA. Í dag er hugað að því yndi sem konur og karlar geta átt ef sá gállinn er á þeim. Lítið er um nýkenningar að þessu sinni og ættu allir að skilja hvað jarla gerður táknar. Ég mæli með Bósa sögu og Herrauðs, vilji fólk rifja upp ljósbláar lýsingar á samskiptum kynjanna.

5. erindi.

Jarla gerður losta ljúf
leikur snilli tæra.
Karla herðir stuttan stúf
steikir milli læra.

Hvað viltu segja?

Please log in using one of these methods to post your comment:

WordPress.com Logo

You are commenting using your WordPress.com account. Log Out /  Breyta )

Facebook photo

You are commenting using your Facebook account. Log Out /  Breyta )

Tengist við %s

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.